
Hvað gerum við?
Við sérhæfum okkur í uppsetningu og umgjörð fermingarveisla.
Við bjóðum heildarlausnir – allt frá skreytingum og uppsetningu til frágangs og þrifa eftir veislu.
Markmið okkar er að skapa fallegt, skipulagt og stresslaust umhverfi fyrir þig og gestina þína.
Fermingarveisla
Við getum verið með þér frá fyrsta spjalli um hugmyndir og undirbúning, í gegnum alla skreytingar og uppsetningu, þjónustu í veislunni sjálfri og alla leið yfir í frágang og þrif þegar hátíðinni lýkur. Þannig getur þú einbeitt þér að því sem skiptir mestu: að fagna fermingarbarninu og njóta dagsins með fjölskyldu og vinum.
Hvort sem fermingarveisla er heima eða í sal þá getur þú valið um:
- Undirbúningur & skipulag – ráðgjöf, hugmyndavinna, val á söluaðilum og plan fyrir daginn
- Skreytingar & uppsetning – allt sem þarf til að skapa fallega og persónulega stemningu
- Þjónusta í veislunni – fagleg þjónusta, borðhald, aðstoð og góð yfirsýn yfir allt sem þarf að ganga upp
- Frágangur & þrif – við tökum til, pökkum saman og skiljum eftir allt tipptopp
Hvort sem þú vilt fulla veisluumsjón eða aðeins smá auka hönd til að létta álagi, þá sér Fiesta til þess að dagurinn verði fallegur, skipulagður og stresslaus – alveg eins og hann á að vera.
Um okkur
Fiesta býr yfir áralangri reynslu í veislu- og veitingageiranum og leggur áherslu á fagmennsku, skipulag og vandaða framkvæmd í hverju verkefni. Markmið okkar er að veita heildstæða og áreiðanlega þjónustu sem uppfyllir væntingar viðskiptavina og skapar eftirminnileg tilefni. Að baki þessari sýn stendur samstillt teymi reynslumikilla fagmanna sem hver og einn leggur sitt af mörkum til að tryggja gæði, þjónustu og jákvæða upplifun. Hér fyrir neðan kynnum við það fólk sem skipar Fiesta og gerir hvert verkefni að veruleika.
Eva Dögg
Framkvæmdastjóri
Hæ! Ég er Eva, forfallaður skipulagsfíkill, veislunörd og manneskjan sem actually elskar að gera verkefnalista. Á meðan aðrir fá stressútbrot af veislum, fæ ég stjörnur í augun og byrja að plana áður en þú nærð að segja „boðskort“. Ég hef unnið við svo margt að það væri fljótlegra að telja upp það sem ég hef ekki gert. En það sem skiptir mestu máli fyrir þig er að ég hef séð um allskonar viðburði, fermingar, brúðkaup, útskriftarveislur, og afmæli frá 1 upp í 90 ára,– sem þýðir að ég kann að redda öllu, brosa undir pressu og finna ótrúlega fljótt hvar kaffivélin er staðsett. Ég er sú sem fólk hringir í þegar allt er að fara í klessu… eða þegar það vill að eitthvað verði einstaklega vel gert. Ég elska mannleg samskipti, skemmtileg verkefni, falleg borð og mest af öllu elska ég að bjarga deginum – helst öllu í einu. Ef þú vilt veislu sem er falleg, skemmtileg, skipulögð, laus við áföll og full af persónulegum smáatriðum, þá ertu kominn á réttan stað. Þú mætir bara og nýtur
Jada
Starfsmaður
Jada er manneskjan sem lætur veislur ganga ótrúlega vel. Hún þarf bara sekúndu til að skanna salinn og veit strax hvað þarf að gerast — og hún gerir það hratt, mjúklega og alltaf með brosi. Jada er snillingur í að þjóna og veit hvernig á að láta allt ganga hnökralaust. Hún er líka kaffibarþjónn og söngkona, svo ef það er einhver vandræðaleg þögn getum við bara fengið hana til að taka lagið. Jada er listræn upp í topp og sér strax hvað þarf til að borð líti vel út — það bara gerist þegar hún stillir upp. En töfrarnir hennar eru jafnvel enn meiri á þjónustuhliðinni: hún sér til þess að matur og drykkur klárist ekki, glös hverfi á réttum tíma og borðið haldist lifandi og fallegt allan tímann — á meðan gestirnir halda að þetta sé allt saman alveg sjálfsagt. (Spoiler: það er það ekki. Það er hún.) Ef eitthvað þarf að gerast strax, þá er Jada þegar farin af stað. Hún vinnur rösklega og með sjarma sem enginn kennir — bara hefur. Við elskum að hafa hana með í veislum, og þú munt gera það líka.
Yuhaina
Starfsmaður
Um Yuhainu – konuna sem reddar RESTINNI Kynntu þér Yuhainu – gleðisprengju frá Venesúela. Hún er manneskjan sem mætir þegar partýið klárast og bjargar öllu sem þarf að bjargast. Ef þú hefur einhvern tíma litið yfir veislusal og hugsað „úff, þetta verður langt kvöld“… þá er Yuhaina nákvæmlega sú sem þú vilt við hliðina á þér. Hún er duglegog vinnur eins og vélin sem þú vissir ekki að þú þyrftir — en getur ekki verið án núna. Yuhaina lærir hratt og hefur ótrúlegt auga fyrir smáatriðum. Hún er líka ótrúlega góð með tölur, sem kemur sér vel þegar telja þarf glasabakka, servíettur eða “hversu marga ruslapoka þarf í þetta?” Íslenskan hennar verður betri með hverjum degi, hún skilur ensku og er alltaf til í að mæta, vinna og klára dæmið. Stutta útgáfan: Við sjáum um veisluna. Yuhaina sér um að þú vaknir daginn eftir og þakkir sjálfum þér fyrir að hafa fengið fagmanneskju í verkið
Stefán Jökull
Starfsmaður
Stefán er yngsti liðsmaðurinn hjá Fiesta, 16 ára gamall og einstaklega duglegur. Hann sinnir uppvaski, frágangi og aðstoð við uppsetningu fyrir veislur af mikilli samviskusemi og er alltaf tilbúinn að hjálpa þar sem þörf er á. Stefán er ástríðufullur golfari og endurspeglast íþróttaandinn vel í vinnubrögðum hans – einbeittur, áreiðanlegur og með jákvætt viðhorf. Hann er dýrmætur hluti af teyminu og leggur sitt af mörkum til góðrar stemningar og vel heppnaðra viðburða.
Samstarfsaðilar
Við hjá Fiesta elskum góð tilboð! Þess vegna eigum við í frábæru samstarfi við mörg fyrirtæki sem við þekkjum og treystum. Þegar þú ert í þjónustu hjá Fiesta færðu sérstakan afslátt hjá okkar samstarfsaðilum – ps. það bætast reglulega einhverjir nýjir við listann svo ekki gleyma að kíkja.
Partýbúðin
Faxafen 11, 108 Reykjavík
partybudin@partybudin.is
Balún
Faxafen 10, 108 Reykjavík
balun@balun.is
Sómi
Gilsbúð 9, 210 Garðabær
somi@somi.is
Þórdís
https://www.instagram.com/thordisz
zophiaflowers@gmail.com
BH Hönnun
https://www.instagram.com/bhhonnun/
bhhonnun@bhhonnun.is
Sætar syndir
Hlíðasmári 19, 201 Kópavogur
pantanir@saetarsyndir.is
Rent a party
Vesturvör 32b, 200 Kópavogur
info@rentaparty.is
Umsagnir
Þegar okkar viðskiptavinir eru ánægðir þá erum við ánægð.
Freyja Auðunsdóttir
Fermingarveisla í heimahúsi.
“Jada og Guðný komu mjög vel fyrir, voru röskar og höfðu góða nærveru. Þær gættu þess að það væri nógur matur og drykkur á borðum og þegar veislan var á enda var nánast allt leirtau hreint. Frábær þjónusta!”
Sigrún Hjaltalín
Brúðkaupsveisla í heimahúsi..
“Að halda veislu með fólkinu sínu gefur ánægjulega upplifun. Ég gekk í mitt annað hjónaband sextug að aldri og veislan var haldin heima. Fiesta hjálpaði mér með undirbúning, skipulagningu, aðstoð í veislunni sjálfri og frágang. Allt var eins og best var á kosið og gaf okkur ljúfar minningar um frábæran dag og tækifæri til að njóta dagsins til hins ýtrasta. Ég mæli innilega með. Við getum notið þess að spjalla og verið áhyggjulaus um það sem þarf að passa upp á til þess að allt gangi vel.
Stresslaus undirbúningur og skipulagning skiptir öllu máli. Ég mæli eindregið með að nýta þjónustu Fiesta, fagleg og frábær þjónusta í alla staði.“
Ásta Stefánsdóttir
Alls konar veislur..
“Eva er einfaldlega langbest í öllu, það er ekkert sem hún getur ekki reddað! Hún er uppfull af hugmyndum og endalaust lausnamiðuð. Það er akkúrat ekkert sem ég myndi ekki treysta henni fyrir. Eva hjá Fiesta er sko go to manneskjan mín í svo mörgu, hún hefur verið stoð mín og stytta í ótalmörgum stórum veislum, brúðkaupi, fimmtugsafmæli og fleira. Hún sér til þess að ekkert klikki, allir viti hvað þeir eigi að gera, og að maður geti notið veislunnar sinnar með gestunum sínum án þess að þurfa að vera á hlaupum.“
Lena BB
Fermingarveisla.
“Eva og co stóðu sig feyknavel og veislan gekk eins og í sögu. Eva skipulagði veisluna frá A Til Ö, hún útvegaði allar skreytingar samkvæmt óskum og smekk fermingarbarnsins, auk þess að semja matseðil og sjá um mat og aðrar veitingar. Við þurftun mikla aðstoð enda ekki með mikið tengslanet, en með hjálp Evu fengum við ljósmyndarann, hárgreiðsluna, rétta kertið og meira að segja Gestabók-sem hafði gleymst í öllum æsingnum.
Við veisluhald er að mörgu að huga, frá því að útvega sal, skipuleggja frágang og þjónustufólk ef þörf er á. Eva þekkir bransann inn og út og veit hver selur ferskasta kóríanderið og hvar þið fáið besta verðið á hráefni og nauðsynjum. Hvort sem þú ert að halda smá boð heimafyrir eða stóra veislu fyrir alla ættina þá ertu í góðum höndum hjá Evu og co.“
Ferlið
Við sérhæfum okkur í því að skapa fallegar, hlýlegar og vel skipulagðar fermingarveislur – og bjóðum heildarlausnir sem ná yfir allan daginn.
Hvort sem þú vilt fá okkur í allt ferlið eða aðeins hluta þess, þá velur þú nákvæmlega þá þjónustu sem hentar þér.
Þú sendir okkur fyrirspurn með upplýsingum um tíma, stað og þá þjónustu sem þú óskar eftir.
Kynningarfundur og hugmyndavinna
Við byrjum á fundi með þér þar sem við förum yfir óskir þínar, væntingar og hugmyndir fyrir fermingarveisluna. Við aðstoðum við að setja upp raunhæfa kostnaðaráætlun og ráðleggjum varðandi mat, drykk og umfang veislunnar. Í framhaldinu bókar þú það sem þarf, ef það er ekki þegar frágengið.
Staðsetning og aðstaða
Næsta skref er að ganga frá staðsetningu veislunnar. Við hjálpum þér að fara yfir hvað er innifalið í aðstöðunni, til dæmis ef um sal er að ræða, svo sem borð, stóla, borðbúnað og annað sem skiptir máli.
Veitingar
Við ráðleggjum þér varðandi veitingar og förum yfir mismunandi valkosti, hvort sem það er að panta veitingar frá veisluþjónustu, blanda saman keyptu og heimagerðu eða sjá alfarið um undirbúning sjálf. Allt er miðað við þínar óskir og kostnaðaráætlun.
Skreytingar og útlit
Við förum yfir hvaða skreytingar henta vel, bæði með tilliti til rýmis, þema og fjárhagsramma. Við erum í samstarfi við ýmis fyrirtæki og njóta okkar viðskiptavinir afslátta hjá þeim.
Önnur atriði
Ljósmyndun, skemmtiatriði og önnur aukaatriði eru mikilvægur hluti af heildarupplifuninni. Við veitum ráðgjöf, bendum á góða lausnir og hjálpum þér að skapa veislu sem verður eftirminnileg fyrir fermingarbarn og gesti.
Jákvæðni
Góðir samstarfsaðilar
Skipulag
Þekking
Reynsla
Heiðarleiki

Finndu okkur á samfélagsmiðlum